Ferðin á Borganes var bara fínasta ferð þó það hafi ekki verið
neitt spes mæting.... Sindri, Ásdís og Kristín komust ekki

en það
var samt stuð! boltaleikurinn var á sínum stað, reyndi Nenad að
spila hann og gerði ekki annað en að bögga alla í kringum sig! arg
hann var pirrandi!! Við vorum bara eitthvað að tjilla og solis! og
það var geggjað drungó kjallari í húsinu sem við vorum í, hann leit
út svona eins og kjallari í morð mynd eða eitthvað í þá áttina(fínn
samt

)!
Svo á laugardagkvöldið fórum við stelpurnar í afmæli til
Sigurbjargar(16 ára) og vá hvað við fengum mikið og gott að
borða!!!!! Svo var náttla spjallað og tekið smá sing star á línuna!
Ég er svo afgerandi léleg að syngja að það er ekki findið! Svo var
geggjuð marensterta í eftirrétta ásamt nammi, snakki og ostum
Á sunnudagskvöldið fór ég svo í bíó með Garðari, Bestu og Kristínu,
á myndina into the blue!! Góð mynd en er kannski meira svo fyrir
stráka þar sem myndavélunum er beint á rassin á Ölbuni svona 50% af
myndinni... En góð mynd samt sem áður

fullt af hákörlum meira að
segja líka nokkrum sem voru í skipum.... hehehehe
Helgin var bara góð gef henni 8 af 10 mögulegum

ég ætla að segja
bara takk við þá sem voru með mér um helgina fyrir gúddí
helgi




;*
Svo er það náttla ím-25 næstu helgi

gangi ykkur vel krakkar! ég
get ekki keppt að sökum meiðsla í hné

en vonandi er þetta að
batna.... En ég ætla ekki að missa af ballinu sem verður á
sunnudagskvöldið þar sem verður crazy hlaðborð og DJ Páll Óskar!!!
Hann er hreinn og beinn fagmaður!! Við ætlum að dansa af okkur
rassinn!! jááttssss
Adiós mis amigos!!
